Salka · íslensk talgerving

Íslenskt tal, þjálfað á Íslandi.

Skrifaðu setningu og hlustaðu. Salka er þjálfuð frá grunni á opnum íslenskum gögnum, keyrir á venjulegum örgjörva og geymir aldrei textann þinn. Í þínu eigin kerfi ef þú vilt.

0/500
Prófaðu:
1,0×

Ctrl + Enter gerir það sama.

Hljóð
Hljóðið birtist hér

Salka hljómar best í heilum setningum. Stök orð eru þekkt takmörkun núverandi líkans — þau eru lesin með samhengistrikki og hljóma þokkalega, en fyrir hljóðskrár í leiki og öpp er best að forrendra og hlusta.

Hvers vegna þetta er öðruvísi en leigð erlend rödd

Keyrir hjá þér
Sjálfhýsingarpakki fyrir Windows eða Linux. Venjulegur örgjörvi dugar: engin skjákort, engin skýjaþjónusta, engin nettenging nauðsynleg.
Textinn fer ekki úr landi
Vefþjónustan tekur við texta, skilar hljóði og geymir hvorugt. Í þínu kerfi fer textinn ekki einu sinni út úr húsi.
Framburður lagaður samdægurs
Sérnöfn, fagorð og tökuorð fara í eigið undantekningasafn. Villa sem heyrist í dag er löguð í dag, ekki send í biðröð hjá erlendum söluaðila.
Hrein leyfiskeðja
Þjálfað frá grunni á opnum íslenskum gögnum (Talrómur, CC BY 4.0). Engin erlend grunnlíkön með óljósum skilmálum undir vörunni.

Fyrir hverja

aðgengi

Bankar, netverslanir, opinber þjónusta

Aðgengistilskipun ESB hefur gilt hér frá júní 2025. Rödd sem notendur þola að hlusta á heilan dag, og texti viðskiptavina fer ekki úr landi.

leikir og öpp

Íslenskt tal með tilfinningu

Glaðleg, hjálpsöm, reið eða döpur. Forrendra hljóðskrár úr eigin línulista og keyra inni í eigin umhverfi, án þess að hver beiðni fari út á net.

útgáfa og fjölmiðlar

Fyrsti upplestur á mínútum

Fréttir, tilkynningar og hljóðútgáfur með sérnöfnin rétt borin fram, af því að hægt er að laga þau sjálfur.

Forritaskil

# ein beiðni, skilar WAV
curl -X POST https://api.tolvuhvislarinn.is/synthesize \
  -H "Content-Type: application/json" \
  -d '{"text": "Góðan daginn og velkomin.", "voice": 4, "speed": 1.0}' \
  -o tal.wav

Hver stendur á bak við þetta

Daði Árnþórsson, Tölvuhvíslarinn í Neskaupstað

Ég heiti Daði og rek Tölvuhvíslarann í Neskaupstað: tölvuviðgerðir á daginn, íslenskur talgervill á kvöldin. Salka er þjálfuð frá grunni hér, á opnum gögnum, og hver einasta breyting fer í gegnum eyrað áður en hún fer í rekstur.

Viltu prófa hana í eigin verkefni, sjálfhýsta eða sem þjónustu? Sendu mér línu með því sem þú ert að byggja. Ég svara sjálfur.